14. júl 2015

Neysluvatn í Hrísey í lagi

Úr Hrísey
Úr Hrísey

Öll sýni sem tekin voru í vatnsveitu Hríseyjar í síðustu viku eru í lagi og því er tilmælum um suðu á neysluvatni aflétt.  Við rýni á kerfinu er mögulegt að lekt við mannop á miðlunargeymi sé möguleg smitleið inn í tankan og verður farið í nauðsynlegar þéttingar við það.

Þeim sem ekki eru að staðaldri í húsum sínum í eyjunni er bent á að skola út úr kerfinu hjá sér í smá tíma.