18. ágú 2011

Norðurorka auglýsir útboð á mælaskiptum

Norðurorka hf. óskar eftir tilboðum í mælaskipti hitaveitu á Akureyri.

Norðurorka hf. óskar eftir tilboðum í mælaskipti á um það bil 320 rennslismælum fyrir hitaveitu á Akureyri. Pípulagninga-meistarar sem taka að sér verkið verða að hafa löggildingu iðnmeistara.

Þeir sem hafa áhuga á því að bjóða í verkið og vilja fá send útboðsgögn er bent á að hafa samband með því að senda tölvupóst á arnaldurm@no.is eða hringja í skiptiborð Norðurorku í síma 460-1300.

Tilboð skal annað hvort senda í lokuðu umslagi á Norðurorku hf. bt. Baldur Dýrfjörð, Rangárvöllum, 603 Akureyri, eða mæta með þau skömmu fyrir opnun þeirra 26. ágúst.

Tilboð verða opnuð föstudaginn 26. ágúst 2011 í fundarsal Norðurorku hf., á 4. hæð að Rangárvöllum, kl. 13:00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem að þess óska.