14. feb 2012

Norðurorka auglýsir útboð á mælaskiptum

Norðurorka óskar eftir tilboðum í mælaskipti á um það bil 1.400 rennslismælum hitaveitu.

Í auglýsingu um verkið segir svo.

Norðurorka óskar eftir tilboðum í mælaskipti á um það bil 1400 rennslismælum hitaveitu.

Fyrirtæki sem tekur að sér verkið verður að hafa ábyrgðarmann að verkinu sem er löggiltur pípulagningameistari.

Þeim sem hafa áhuga á því að bjóða í verkið er bent á að hafa samband með því að senda tölvupóst á no@no.is eða hringja í þjónustuver Norðurorku í síma 460-1300 til að fá send útboðsgögn.

Tilboð verða opnuð föstudaginn 24. febrúar 2012 kl. 13:00 í fundarsal Norðurorku að Rangárvöllum, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Útboðslýsingu má finna hér.

Auglýsing um mælaskipti fyrir Norðurorku febrúar 2012