17. maí 2013

Norðurorka hf. bakhjarl Iðnaðarsafnsins

Norðurorka hf. er bakhjarl Iðnaðarsafnsins á Akureyri en skrifað var undir samning þar að lútandi í dag.

Norðurorka hf. er bakhjarl Iðnaðarsafnsins á Akureyri en skrifað var undir samning þar að lútandi í dag föstudaginn 17. maí 2013.

Lögð er áhersla á að þeir fjármunir sem lagðir eru í verkefnið séu sérstaklega nýttir til viðburða sem standa bæjarbúum endurgjaldslaust til boða og/eða snúa að fræðslu fyrir börn og ungmenni.

Frá undirritun bakhjarlasamnings milli Iðnaðarsafnsins á Akureyri og Norðurorku hf.

Frá undirritun samningsins Helgi Jóhannesson forstjóri Norðurorku og Þorsteinn E Arnórsson formaður stjórnar Iðnaðarsafnsins á Akureyri.