6. jan 2016

Norðurorka hf. bakhjarl Listasafnsins á Akureyri

Frá undirritun samnings þar sem Norðurorka hf. gerist bakhjarl Listasafnsins á Akureyri janúar 2016

Hlynur Hallsson safnstjóri Listasafnsins á Akureyri og Helgi Jóhannesson forstjóri Norðurorku

 

Norðurorka hf. og Listasafnið hafa gengið frá samningi þess efnis að Norðurorka verði bakhjarl safnsins næstu þrjú árin.

Í samningnum er lögð áhersla á það að bakhjarlastyrkur Norðurorku sé einkum nýttur í þágu fræðslu og kynningarstarfs fyrir börn og unglinga.

Hér að ofan má sjá mynd frá undirritun samningsins en hún fór fram í tengslum við kynningu safnsins á komandi starfsári.