28. sep 2012

Norðurorka hf. og Menningarhúsið HOF undirrita bakhjarlasamning

Stjórn Norðurorku hf. staðfesti á fundi sínum í september að halda áfram samstarfi við Menningarhúsið HOF með því að framlengja núverandi bakhjarlasamning út árið 2013.

Stjórn Norðurorku hf. staðfesti á fundi sínum 10. september sl. að halda áfram samstarfi við Menningarhúsið HOF með því að framlengja núverandi bakhjarlasamning út árið 2013.

Í samningnum fellst að Norðurorka veitir Menningarhúsinu HOFI fjárstyrk að fjárhæð kr. 1.250.000 og skal honum einkum varið til þess að styðja við og auka opna viðburði í HOFI sem almenningur hefur aðgang að án endurgjalds.

Undirritun samningsins mun fara fram í lok þáttarins GESTIR ÚT UM ALLT næstkomandi sunnudag 30. september um kl. 15.00.

 

Menningarhúsið Hof