5. jún 2013

Norðurorka hf. og Orkuveita Húsavíkur ohf. kaupa hlut Orkuveitu Reykjavíkur

Norðurorka hf. og Orkuveita Húsavíkur - Fréttatilkynning Stjórnir Norðurorku hf. og Orkuveitu Húsavíkur samþykktu á fundum sínum 3. júní að nýta forkaupsrétt sinn að hlut Orkuveitu Reykjavíkur í Hrafnabjargavirkun hf. og hafa þegar verið lögð drög að kaupsamningum milli aðila.

Norðurorka hf. og Orkuveita Húsavíkur

- Fréttatilkynning

Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum þann 5. apríl s.l. að selja hlut sinn í Hrafnabjargavirkjun hf. og í samræmi við samþykktir félagsins að bjóða öðrum hluthöfum að neita forkaupsréttar síns.

Stjórnir Norðurorku hf. og Orkuveitu Húsavíkur ohf. samþykktu á fundum sínum 3. júní að nýta forkaupsrétt sinn og hafa þegar verið lögð drög að kaupsamningum milli aðila.

Sem stendur eru virkjunarkostir á vatnasvæði Skjálfandafljóts í biðflokki samkvæmt rammaáætlun þar sem ekki liggja fyrir nægileg gögn og rannsóknir á svæðinu.

Markmiðið með lögum um rammaáætlun er að nýting landsvæða þar sem virkjunarkosti er að finna, byggist á langtímasjónarmiðum og heildstæðu hagsmunamati þar sem tillit er tekið til jafnt umhverfissjónarmiða sem hagkvæmni og arðsemi ólíkra nýtingarkosta.

Með frekari rannsóknarvinnu og gagnasöfnun er ætlunin að kanna mismunandi virkjunarkosti, útfærslur þeirra og möguleg umhverfisáhrif.

Er það niðurstaða stjórna Orkuveitu Húsavíkur ohf. og Norðurorku hf. að mikilvægt sé að frekari rannsóknum á svæðinu verði haldið áfram.  Sömu sjónarmið hafa komið fram hjá sveitarstjórn Þingeyjarsveitar.

Næstu skref í málinu er að Hrafnabjargavirkjun hf. og Landsvirkjun sækja sameiginlega um rannsóknarleyfi á svæðinu.