15. maí 2015

Norðurorka hf. stofnar hlutafélagið Vistorku ehf.

Undanfarin ár hefur verið stofnað til þó nokkurra verkefna í endurvinnslu á Akureyri.  Má þar nefna Moltu sem er jarðgerðarstöð, Orkey ehf. sem endurvinnur mör, úrgangslífolíur og úrgangsfeiti í lífdísel, metanframleiðslu úr hauggasi frá gömlu sorphaugunum á Glerárdal og GPO ehf. sem framleiðir olíu úr úrgangs plasti.  Þá ber einnig að nefna að íbúar og fyrirtæki hafa náð miklum og góðum árangri í flokkun sorps á Akureyri og Akureyrarbær gert samning við Gámaþjónustu Norðurlands um rekstur flokkunarstöðvar. Þannig hefur náðst góður árangur í endurvinnslu sem sannarlega er til fyrirmyndar.

Þá hefur töluverð gagnasöfnun farið fram á undanförnum árum á vegum AFE er snýr að möguleikum á frekari nýtingu á svæðisbundnu hráefni til eldsneytisframleiðslu.  Nú hefur verið ákveðið að taka frekari skrer í þessa átt og stofna félagið Vistorku.

Tilgangur félagsins er að kanna frekari möguleika á framleiðslu umhverfisvæns eldsneytis sem nýtir innlent hráefni.  Markmiðið er að meta hvort að á Eyjafjarðarsvæðinu sé hægt á sjálfbæran hátt að nýta hráefni sem til fellur, til framleiðslu á umhverfisvænu eldsneyti.  Einnig mun félagið kanna mögulega nýtingu á þeim hliðarafurðum sem framleiðslunni tengjast og með hvaða hætti nýting og samspil þeirra geti stutt við meginmarkmiðin. Í þessu samhengi er einnig mikilvægt að meta áhrif umhverfisvænnar eldsneytisframleiðslu á umhverfisáætlanir, kolefnisbúskap og ímynd fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga á svæðinu sem verður einnig hluti af verkefnum félagsins. 

Ljóst er að ýmis tækifæri eru fyrir almenning, fyrirtæki og sveitarfélög að styðja við og vera beinir þátttakendur í þróun til enn vistvænna samfélags.  Reynslan hingað til gefur fullt tilefni til bjartsýni í þeim efnum.  Með frekari þróun og virkri þátttöku er einnig hægt að styðja við og efla þau fyrirtæki sem fyrir eru í þessum geira hér á Norðurlandi.

Stjórn félagsins skipa:

Stjórnarformaður 
Halla Bergþóra Halldórsdóttir - Norðurorka

Aðrir í stjórn
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir - Akureyrarstofa
Ólafur Halldórsson – Háskólinn á Akureyri
Sigurður Ingi Friðleifsson - Orkusetur
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson - AFE

Varastjórn
Baldur Dýrfjörð - Norðurorka
Þórarinn Kristjánsson – GPO ehf.      

Framkvæmdastjóri hefur verið ráðinn:
Guðmundur Haukur Sigurðsson tæknifræðingur.