8. jan 2016

Norðurorka og Menningarfélag Akureyrar gera bakhjarlasamning

Í dag var skrifað undir samning milli Norðurorku hf. og Menningarfélags Akureyrar um að Norðurorka verði bakhjarl Menningarfélagsins næstu þrjú árin.

Í samningnum er lögð áhersla á að styrkur Norðurorku gangi til viðburða sem standa bæjarbúum og gestum Hofs til boða endurgjaldslaust og þá sérstaklega viðburða fyrir grunnskólabörn.

Hér að neðan má sjá myndir frá undirritun samningsins. Sólveig Elín Þórhallsdóttir viðburðastjóri Menningarfélags Akureyrar og Helgi Jóhannesson forstjóri Norðurorku hf.

Frá undirritun bakhjarlasamnings Menningarfélags Akureyrar og Norðurorku janúar 2016

Frá undirritun bakhjarlasamnings Menningarfélags Akureyrar og Norðurorku janúar 2016