5. feb 2014

Norðurorka semur við Þekkingu

Samningur um tölvuþjónustu var í dag undirritaður milli Norðurorku hf. og Þekkingar hf.

Gerð var verðkönnun meðal þjónustuaðila og átti Þekking lægsta boð í tölvuþjónustu fyrir Norðurorku.

Í samningnum fellst öll almenn tölvuþjónusta, s.s. aðgangur að og uppfærsla á hugbúnaði, hýsing gagna, öryggisafritun o.fl.

Frá undirritun samnings milli Norðurorku og Þekkingar um tölvuþjónustu

Mynd frá undirritun samninga.
Sigurður J. Sigurðsson fjármálastjóri Norðurorku hf. og
Bjarni Freyr Guðmundsson viðskiptastjóri Þekkingar hf.