15. nóv 2024

Norðurorka styrkir Landsbjörg með kaupum á stóra neyðarkallinum

Einar Ingi Hermannsson, starfsmaður Norðurorku og björgunarsveitarmaður, afhendir Eyþóri Björnssyni,…
Einar Ingi Hermannsson, starfsmaður Norðurorku og björgunarsveitarmaður, afhendir Eyþóri Björnssyni, forstjóra Norðurorku, stóra Neyðarkallinn.

Neyðarkallinn 2024 er mættur í hús

Á dögunum fór fram ein stærsta fjáröflun björgunarsveita Landsbjargar, salan á neyðarkallinum. Samhliða sölunni á Neyðarkallinum selja björgunarsveitirnar fyrirtækjum stærri Neyðarkalla og ákvað Norðurorka að styrkja björgunarsveitir landsins um einn slíkan. Er það fyrirtækinu bæði ljúft og skylt að styðja við bakið á því frábæra og óeigingjarna fólki sem styður við okkur öll þegar við þurfum á að halda. Hagnaður af sölunni rennur til björgunarsveita og slysavarnadeilda og er hann notaður til að efla og styrkja starfið.

Í gegnum tíðina hefur almenningur haft mikinn skilning á störfum björgunarsveita enda veit fólk að þegar neyðarkall berst bregðast þær hratt við með allan sinn mannskap, búnað, tækni og þekkingu. Sjá frekari upplýsingar um starfið hjá Landsbjörg hér.