6. maí 2011

Nýbygging Gámaþjónustunar rís

Gámaþjónusta Norðurlands byggir nýja starfsstöð við Hlíðarfjallsveg.

Þessa daganna er unnið að framkvæmdum við nýbyggingu Gámaþjónustu Norðurlands við Hlíðarfjallsveg en þar er verið að reisa flokkunarstöð fyrir sorp Akureyringa.

Norðurorka vinnur nú að lagningu nýrrar hitaveitulagnar að húsinu en í vetur sem leið var lagður rafstrengur að nýbyggingarsvæðinu.  Ný spennistöð verður einnig reist nokkru vestan við svæðið.