2. maí 2011

Nýtt hótel í byrjun sumars

Gamli Iðnskólinn á Akureyrir fær nýtt hlutverk. Hótel opnar í júní.

Gamli Iðnskólinn á Akureyrir fær nýtt hlutverk en hótel opnar þar í júní.  Ánægjulegt er að sjá þá tiltrú á ferðaþjónustuna sem birtist í þessum framkvæmdum.  Norðurorka hefur komið að framkvæmdunum með endurnýjun á heimlögnum, vatnsveitu, rafveitu og hitaveitu.  Unnið er að kappi við húsið og eins og sést á myndinni er það stækkað til suðurs og bætt hæð ofan á það.