11. júl 2011

Óhreinindi í heitavatninu

Frá Hjalteyri
Frá Hjalteyri
Nokkuð hefur borið á því í gærkvöldi og í morgun einkum á Brekkunni og stöku stað í Þorpinu að óhreininda gæti í heita vatninu. Þetta stafar af því að vatnsvinnslu var hætt á Hjalteyri vegna viðgerða.

Nokkuð hefur borið á því í gærkvöldi og í morgun einkum á Brekkunni og á stöku stað í Þorpinu að óhreininda gæti í heita vatninu. 
Ástæður þessa eru þær að vegna viðgerða og viðhalds á vinnslusvæðinu á Hjalteyri þurfti að stöðva dælingu þaðan, en að öllu jöfnu er mest af því vatni sem Akureyringar nota að koma frá Hjalteyri.  Þetta þýðir að nú er megnið af heita vatninu að koma frá vinnslusvæðum í Eyjafjarðarsveit.  Við þessar aðstæður breytist því rennslisátt í götulögnum sem skapar hættu á því að fín efni sem alltaf eru til staðar í lagnakerfinu fara á stað og verður til þess að vatnið litast og virðist óhreint. Yfirleit hverfa þessi áhrif á stuttum tíma og eiga ekki að valda tjóni.
Gæti ryksins í vatninu í lengri tíma þá eru viðskiptavinir beðnir að snúa sér til þjónustuvers Norðurorku hf. í síma 4601300 og láta vita, því sé um mikið magn að ræða getur verið nauðsynlegt að skola út götulagnir og heimæðar og hreinsa síur í inntökum.

Viðhald og eftirlit með búnaði vinnslusvæðanna er mikilvægur og nauðsynlegt að unnið sé við þau verkefni á sumartíma þegar notkun er í lágmarki. Norðurorka hf. biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem viðskipta vinir kunna að hafa orðið fyrir vegna þessa.