5. nóv 2024

Norðurorka óskar eftir að ráða öryggis- og umhverfisstjóra

Höfuðstöðvar Norðurorku síðsumars.
Höfuðstöðvar Norðurorku síðsumars.

Erum við að leita að þér? 

Norðurorka óskar eftir að ráða öryggis- og umhverfisstjóra

Starfssvæði Norðurorku hf. er víðfeðmt en fyrirtækið rekur fjölbreytta veitustarfsemi á Akureyri og Eyjafjarðarsvæðinu. Norðurorka leggur áherslu á öryggis- og umhverfismál í allri sinni starfsemi og leitast við að vera í fararbroddi á þeim sviðum.

Starfið tilheyrir skrifstofu forstjóra og næsti yfirmaður er forstjóri.

Umsóknarfrestur er til og með 17. nóvember

Frekari upplýsingar / umsóknarform

Umsækjendur eru hvattir til að fylla vandlega út umsóknarformið. Vel framsett umsókn með upplýsingum um fyrri störf og menntun er líklegri til að standast samanburð við aðrar umsóknir.

Um Norðurorku

Meginhlutverk Norðurorku er að þjónusta heimili og atvinnulíf með vinnslu og dreifingu á heitu vatni og neysluvatni, rekstri dreifikerfi raforku og rekstri fráveitu. Norðurorka er reyklaus vinnustaður og starfar skv. vottuðu gæðakerfi (ISO 9001).

Norðurorka er metnaðarfullt og vel rekið fyrirtæki sem laðar að sér hæft starfsfólk og hlúir að því. Við leggjum áherslu á að byggja upp nærandi starfsumhverfi þar sem starfsfólk vex og dafnar í lífi og starfi. Við erum framsækin í nýsköpun og þjónustu og berum ríka samfélagslega ábyrgð.