Tölvupóstþjónn Norðurorku er óvirkur og hefur verið frá því í gær.
Starfsmenn geta því ekki móttekið né sent tölvupóst. Viðskiptavinir eru beðnir velvirðingar á þessu.
Hægt er að ná í Norðurorku í síma 460-1300 og í beina síma starfsmanna sjá nánar upplýsingar á heimasíðu.
Vonast er til að viðgerð ljúki í dag.
Meginreglan er sú að tölvupóstþjónn sendanda reynir í sólarhring að senda tölvupótinn á netfang Norðurorku eftir það ættir sendandinn að fá skilaboð um að sending hafi ekki tekist. Því getur verið nauðsynlegt að senda póstinn að nýju þegar tölvupóstþjónninn er kominn í lag hjá okkur.
Opnunartími í afgreiðslu:
Alla virka daga kl. 8-12 og 13-15
Opnunartími þjónustuborðs:
Mánudag til fimmtudags kl. 8-12 og 13-16
Föstudag kl. 8-12 og 13-15:20