11. sep 2013

Rafmagnsbíll til Norðurorku hf.

Formleg afhending á rafmagnsbíl til Norðurorku hf. fór fram hjá bílasölu Höldurs í dag miðvikudaginn 11. september 2013. Um er að ræða Mitsubishi I-MiEv sem er fyrsti fjöldaframleiddi rafmagnsbíllinn í heiminum en hann kom fyrst á markað árið 2009. Bíllinn notar eingöngu rafmagn og mengar því ekki með CO² eins og bílar með mótor sem brennir jarðefnaeldsneyti.

Formleg afhending á rafmagnsbíl til Norðurorku hf. fór fram hjá bílasölu Hölds í dag miðvikudaginn 11. september 2013.  Um er að ræða Mitsubishi I-MiEv sem er fyrsti fjöldaframleiddi rafmagnsbíllinn í heiminum en hann kom fyrst á markað árið 2009.  Bíllinn notar eingöngu rafmagn og mengar því ekki með CO² eins og bílar með mótor sem brennir jarðefnaeldsneyti.

Um 18% af þeirri orku sem nýtt er á Íslandi er innflutt jarðefnaeldsneyti og er það aðallega notað í samgöngum og fiskveiðum.  Tækifæri Íslendinga til þess að minnka koltvísýringsmengun með notkun raforku í samgöngum er því raunhæfur kostur.

Tækninni í rafmagnsbílum fleygir stöðugt fram þó enn sé nokkuð í land að rafmagnsbílar geti keppt við hefðbundar bifreiðar þegar kemur að langkeyrslu.  Rafmagnsbíllinn er hins vegar ótvíræður kostur á styttri vegalengdum innanbæjar og orkukostnaður hans er aðeins brot af hefðbundnum bíl.  Ef miðað er við 20.000 km akstur á ári þá er áætlaður orkukostnaður um 34.000 kr. sem gerir um 350.000 kr. sparnað á ári ef miðað er við meðal bensín bíl.

Helgi Jóhannesson forstjóri Norðurorku hf. segir það spennandi fyrir fyrirtækið að prófa svona bíl og mikilvægt að taka þátt í framþróuninni með því að reka rafmagnsbíl.  Eftir eigi að koma í ljós hvernig bíllinn reynist í akureyskum vetraraðstæðum en það er einmitt eitt af því sem vert sé að prófa.

Helgi Jóhannesson forstjóri Norðurorku hf. tekur við lyklum rafmagnsbílsins úr hendi Áskels Þórs Gíslasonar rekstrarstjóra bílaþjónustu Hölds.  Mynd: Þórhallur

Rafmagnsbíll Norðurorku hf. Mitsubishi I-MiEv - mynd Auðunn

Rafmagnsbíll Norðurorku hf. Mitsubishi IMiEv - Mynd Auðunn