23. mar 2012

Rafmagnslaust í hluta Lundahverfis

Vegna viðhalds og endurbóta þarf að taka rafmagnið af hluta Lundahverfis eins og nánar er sýnt á meðfylgjandi mynd.

Vegna viðhalds og endurbóta á dreifistöð nr. 60 þarf að taka rafmagnið af hluta Lundahverfis eins og nánar er sýnt á meðfylgjandi mynd.  Send hafa verið dreifibréf í allar húseignir sem rafmagnsleysið varðar þar sem eftirfarandi kemur fram.

Vegna vinnu við dreifistöð, verður RAFMAGNSLAUST sunnudaginn 25. mars 2012 frá kl. 07:30 – 16:00.

Vakin er athygli á eftirfarandi;
Ef rafmagn er ekki komið á kl. 16:00 skal athuga hvort lekaliði hefur slegið út í töflu, ef ekki skal hafa samband við bilanavakt.

Þjónustuver: 460-1300 (á skrifstofutíma frá kl. 8.00 - 16.00)
Verkstjóri: gsm. 893-7292
Bilanavakt rafmagnsveitu eftir kl. 16:00 og um helgar gsm. 892-1514

Húsin sem rafmagnsleysið tekur til PDF-skjal

Rafmagnslaust í Lundahverfi vegna viðhalds í dreifistöð 60