Vegna bilunar í spennistöð við Miðhúsabraut varð rafmagnslaust í hluta Naustahverfis og Teigahverfis fyrr í kvöld (sjá kort).
Bruni kom upp í spennistöðinni rétt fyrir klukkan sex, viðgerð gekk framar vonum og er nú lokið.
Hrós fá allir sem að komu fyrir góð og fagmannleg viðbrögð.
Norðurorka óskar öllum gleðilegra jóla.
Opnunartími Norðurorku
Opið virka daga kl. 8-12 og 13-15