7. mar 2016

Rafmagnslaust í norðurhluta miðbæjar, við Eiðsvöll og hluta Brekkugötu

Rafmagnslaust í miðbæ Akureyrar að kvöldi 9. mars

Vegna framkvæmda við spennistöð þarf að taka rafmagnið af hluta miðbæjarins, á svæði nærri Eiðsvellinum og hluta Brekkugötu eins og nánar er sýnt á myndinni hér að neðan.

Rafmagnið verður tekið af að kvöldi miðvikudagsins 9. mars, þ.e. frá kl. 22:30 og áætlað að það verið komið á að morgni fimmtudagsins 10. mars.    

Hér á heimasíðunni má sjá góð ráð sem gott er að hafa í huga við rafmagnsleysi.

rafmagnsrof miðbæ 9. mars 2016