28. jún 2012

Rafmagnslaust í hverfum norðan Glerár

Rafmagnslaust varð í hverfum norðan Glerár um kl. 8.30 og var komið rafmagn á öll hverfi um kl. 10.00.

Rafmagnslaust varð í hverfum norðan Glerár um kl. 8.30 og var komið rafmagn á öll hverfi um kl. 10.00.

Ástæðan er bilun í rafdreifikerfi Norðurorku. Vel gekk að koma rafmagninu á miðað við aðstæður en hringtengingar gera kleift að fæða einstök svæði úr fleiri en einni átt eins og það er nefnt.

Ef rafmagn er ekki komið á  skal aðgæta hvort lekaliði hefur slegið út.

Sé húsráðandi í vafa um hvernig bregðast á við skal undantekningalaust haft samband við rafvirkjameistara hússins.