22. feb 2016

Rafmagnsútleysing á Akureyri

Vegna útleysingar í spennistöð Landsnets við Rangárvelli á Akureyri varð rafmagnslaust skamma stund á hluta Akureyrar um kl. 16:30.
 
Eftirfarandi tilkynning birtist á vef Landsnets af þessu tilefni:
 

Útleysing á 66kV- útgangi fyrir Þingvallastræti á Rangárvöllum, aflrofinn var settur strax inn aftur frá OSK

Rauntími/dagsetning atburðar: 22.02.2016 16:28

Skráning atburðar á vef: 22.02.2016 16:31

Alvarleiki: Grænn