9. des 2024

Sérfræðingur í upplýsingakerfum veitna

Mynd: Sindri Swan
Mynd: Sindri Swan

Norðurorka auglýsir eftir tæknilega sinnuðum sérfræðingi sem er fljótur að tileinka sér nýja færni. Æskilegt er að viðkomandi hafi góða reynslu eða innsýn í veitukerfi, upplýsingatækni, gagnavinnslu og/eða rafræna þjónustu.

Framundan eru mörg spennandi verkefni sem tengjast rafrænni þjónustu, úrvinnslu gagna og hönnun veitukerfa. Starfið er á þjónustusviði og næsti yfirmaður er verkefnastjóri upplýsingakerfa veitna.

Umsóknarfrestur er til og með 5. janúar 2025

Frekari upplýsingar / umsóknarform

Umsækjendur eru hvattir til að fylla vandlega út umsóknarformið. Vel framsett umsókn með upplýsingum um fyrri störf og menntun er líklegri til að standast samanburð við aðrar umsóknir.

Um Norðurorku

Meginhlutverk Norðurorku er að þjónusta heimili og atvinnulíf með vinnslu og dreifingu á heitu vatni og neysluvatni, rekstri dreifikerfi raforku og rekstri fráveitu. Norðurorka er reyklaus vinnustaður og starfar skv. vottuðu gæðakerfi (ISO 9001).

Norðurorka er metnaðarfullt og vel rekið fyrirtæki sem laðar að sér hæft starfsfólk og hlúir að því. Við leggjum áherslu á að byggja upp nærandi starfsumhverfi þar sem starfsfólk vex og dafnar í lífi og starfi. Við erum framsækin í nýsköpun og þjónustu og berum ríka samfélagslega ábyrgð.