24. jún 2011

Skrifað undir kjarasamning milli Norðurorku hf. og Einingar Iðju og Kjalar

Gengið hefur verið frá kjarasamningi milli Norðurorku hf. annars vegar og Einingar Iðju og Kjalar - stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu hins vegar.

Í dag var skrifað undir kjarasamningi milli Norðurorku hf. annars vegar og Einingar Iðju og Kjalar - stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu hins vegar. 

Samningurinn byggir á sama grunni og þeir aðalkjarasamningar sem Samtök atvinnulífsins gerðu við Alþýðusamband Íslands og Starfsgreinasamband Íslands. 

Samningurinn er gerður með fyrirvara um samþykki þeirra félagsmanna aðildarfélaganna sem hann varðar og verður kynntur þeim og borin undir atkvæði á næstu dögum.