15. jún 2024

Slys á vatnsverndarsvæði Norðurorku

Frá slysstað í morgun.
Frá slysstað í morgun.

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum varð alvarlegt rútuslys við Fagranes í Öxnadal í gær. Viðbúnaður viðbragðsaðila var mikill og aðkoma starfsfólks Norðurorku einnig þar sem slysið varð inn á vatnsverndarsvæði fyrirtækisins sem nær m.a. inn að vatnaskilum á Öxnadalsheiði.

Fljótlega kom í ljós að mikilvægt væri að grípa til aðgerða til að fyrirbyggja að mengunin hefði áhrif á vatnsverndarsvæðið. Neysluvatnsdæling frá vatnstökusvæðinu á Vöglum var stöðvuð af öryggisástæðum og mengunarvarnabúnaði komið fyrir í og við ána. Árkvísl sem liggur næst veginum var stífluð ofan við slysstað til að stöðva vatnsrennsli við mengaðan árbakkann. Þegar mengaður jarðvegur var grafinn upp safnaðist fyrir olía í holunni og var gripið til þess ráðs að brenna olíuna til að eyða henni á staðnum og fyrirbyggja að hún færi lengra. Seinna kom dælubíll á staðinn og var olíunni þá dælt upp.

Mat Norðurorku og Heilbrigðiseftirlitsins er að búið að sé að ná stjórn á aðstæðum og tryggja að olíulekinn hafi ekki áhrif á vatnstökusvæðið sjálft. Neysluvatnsdæling frá Vöglum er því hafin að nýju. Starfsfólk Norðurorku og verktakar eru enn á staðnum að hreinsa upp mengaðan jarðveg og ferja hann út af vatnsverndarsvæðinu.

Frá slysstað í morgun

Ljóst er að þetta mengunarslys er það umfangsmesta sem orðið hefur á vatnsverndarsvæði Norðurorku. Skjót og rétt viðbrögð skipta sköpum við aðstæður sem þessar en unnið er samkvæmt viðbragðsáætlun vatnsveitu og neyðarstjórn Norðurorku var virkjuð.

Norðurorka hf. þakkar starfsfólki sínu og öðrum sem að komu fyrir fagleg og yfirveguð vinnubrögð við krefjandi aðstæður.

Vatnsverndarsvæðið á Vöglum er annað tveggja vatnsverndarsvæða Akureyringa.
Hér má finna
frekari upplýsingar um vatnsverndar- og vatnstökusvæði Norðurorku hf.  Vatnsverndarsvæði | Norðurorka