6. júl 2011

Straumlaust í hluta Lundahverfis

Vegna viðhaldsverkefna í spennistöð verður straumur tekinn af Hrísalundi, Tjarnarlundi, Furulundi og Viðjulundi n.k. sunnudag 10. júlí frá kl. 12.30. Áætlað er að straumleysi vari í 6 – 8 klukkustundir.

Vegna viðhaldsverkefna í spennistöð verður straumur tekinn af Hrísalundi, Tjarnarlundi, Furulundi og Viðjulundi n.k. sunnudag 10. júlí frá kl. 12.30. Áætlað er að straumleysi vari í 6 – 8 klukkustundir. Verslanir á svæðinu verða lokaðar á meðan á viðhaldvinnu stendur.

Íbúum á svæðinu er bent á að hafa ekki viðkvæm raftæki í notkun þegar rafmagnið fer af og huga að því að endurstilla öll tímastillt raftæki sem kunna að hafa breytt sér.

Beðist er velvirðingar á þeirri röskun sem þetta kann að hafa í för með sér.

Mynd af svæðinu má sjá hér.