10. maí 2014

Straumleysis og spennusveiflur á Norður- og Austurlandi

Orsakir spennusveiflna í raforkukerfinu á Norður- og Austurlandi á mánudagskvöldið, í kjölfar truflunar í raforkukerfinu á Suðvesturlandi, eru fyrst og fremst raktar til þess að rekstur byggðalínunnar er kominn að þanmörkum segir í frétt Landsnets. Straumlaust varð víða um tíma eystra og fregnir hafa borist af tjóni á raftækjum á Norður- og Austurlandi.

Um kl. 22 mánudagskvöldið 5. maí varð fyrirvaralaus útleysing á Suðvesturlandi og brugðust kerfisvarnir Landsnets við með því að skipta raforkukerfinu þegar í stað upp í tvær eyjar.  Við samtengingu kerfisins á ný, um klukkustund síðar, varð skammvinn spennuhækkun á Austur- og Norðurlandi sem margir urðu varir við. Rétt fyrir miðnætti á mánudagskvöld var flutningskerfið aftur komið í eðlilegan rekstur og öllum skerðingum vegna truflana aflétt.

Eins og áður segir eru ástæður truflananna fyrst og fremst raktar til þess að byggðalínan er rekin á þanmörkum og þetta er því enn og aftur áminning um mikilvægi þess að styrkja tengingu meginflutningskerfisins milli norður- og suðurhluta landsins.

Landsnet bendir almennum notendum á, telji þeir sig hafa orðið fyrir tjóni vegna straumleysis eða spennusveiflna, að vera í sambandi við viðkomandi dreifiveitu.