24. okt 2012

Styrkir Norðurorku hf. til samfélagsverkefna

Fulltrúar þeirra sem hlutu styrki fyrir árið 2012
Fulltrúar þeirra sem hlutu styrki fyrir árið 2012
Auglýsing um styrki Norðurorku hf. til samfélagsverkefna birtast í fjölmiðlum og auglýsingarmiðlum.

Auglýsing um styrki Norðurorku hf. til samfélagsverkefna birtast í fjölmiðlum og auglýsingarmiðlum þessa daganna.

Norðurorka hf. veitir árlega fjárstyrki til samfélagsverkefna og nú er hægt að skila inn umsóknum um styrki fyrir árið 2013. Skilafrestur að þessu sinni er til og með 12. nóvember 2012 og þá miðað við að umsóknir hafi borist fyrir lok skrifstofu kl. 16.00 þann dag.

Veittir eru styrkir til menningar- og lista, íþrótta- og æskulýðsstarfs og góðgerðarmála en fjárhæð styrkja er samtals fimm milljónir króna.  Gert er ráð fyrir að styrkjum verði úthlutað á málþingi Norðurorku hf. sem haldið er milli jóla og nýárs.

Nánari upplýsingar um styrkina, auglýsingu, umsóknareyðublað o.fl. má finna hér.