Fimmtudaginn 17. febrúar úthlutaði Norðurorka styrkjum til samfélagsverkefna og fór athöfnin fram í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Staðsetningin er vel við hæfi þar sem Norðurorka er bakhjarl Menningarfélagsins.
Í nóvember 2021 auglýsti Norðurorka hf. eftir umsóknum um styrki til samfélagsverkefna fyrir árið 2022 og rann umsóknarfrestur út 19. nóvember. Fram kom að veittir væru styrkir til menningar- og lista, íþrótta- og æskulýðsstarfs og góðgerðarmála. Markmið með styrkjum Norðurorku hf. er að styðja við sjálfsprottið starf, starfsemi frjálsra félagasamtaka og framtak einstaklinga sem stuðlar að farsælli þróun samfélagsins, lífsgæðum og fjölbreyttu mannlífi.
Alls bárust 96 umsóknir. Flestar umsóknir bárust frá aðilum á starfssvæði Norðurorku sem nær frá Fjallabyggð til Þingeyjarsveitar en einnig komu nokkrar umsóknir annarsstaðar frá. Verkefnin voru fjölbreytt og greinilega mikil gróska í samfélaginu á fjölmörgum sviðum en að þessu sinni hlutu 39 verkefni styrk og nam heildarfjárhæð styrkja sjö milljónum króna.
Hér að neðan má sjá mynd sem Auðunn Níelsson tók af styrkþegum eða fulltrúum þeirra, ásamt Helga Jóhannessyni forstjóra Norðurorku og Hlyn Jóhannssyni að lokinni úthlutun. Einnig má sjá lista yfir þau verkefni eða þá aðila sem hlutu samfélagsstyrk Norðurorku að þessu sinni.
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir | Skúlptúragarður |
AkureyrarAkademían. | Fræðandi fyrirlestrar á öldrunarheimilum |
Anna Richardsdóttir | Stuttmyndagerð |
Arnfinna Björnsdóttir | Klippimyndir frá Síldarárunum |
Björk Níelsdóttir | Ævintýri á aðventunni |
Brák Jónsdóttir | Menningardagskrá í Freyjulundi |
Eik Haraldsdóttir | Afreksstyrkur - Menning og listir |
Erla Dóra Vogler | Heilsárs tónlistarveisla í félagsheimilum |
Ferðafélag Akureyrar | Ferðir fyrir börn og fjölskyldur þeirra |
Garðurinn hans Gústa | Körfuboltavöllur við Glerárskóla |
Hildur Inga Magnadóttir | Námskeið fyrir 14-18 ára unglinga með fötlun |
Hjólreiðafélag Akureyrar | Barna- og ungmennastarf í hjólreiðum |
Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri | Sjúkrarúm fyrir Kristnesspítala |
Innflytjendaráð á Akureyri og nágrenni | Ég - menningarmót í Hofi |
Jón Hjaltason | Minningabók eftir Steinunni Bjarman |
Júlía Rós Viðarsdóttir | Afreksstyrkur - Listhlaup á skautum |
Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis | Fræðsla og stuðningur við krabbameinsgreinda |
Kraftur - fyrir NorðanKraft | Fræðsla og stuðningur við krabbameinsgreinda |
Kristlaug Eva Wium Elíasdóttir | Afreksstyrkur - Körfubolti |
Lionsklúbburinn Ylfa | Ungar jaðarsettar mæður |
Minjasafnið á Akureyri | Sögustaurar og Safnið í símann |
Mótorhjólasafn Íslands | Start up dagurinn 2022 |
Ólafur Sveinsson | Námskeið í tálgun fyrir börn og fullorðna |
Píludeild Þórs | Til að efla þátttöku kvenna og kaup á æfingabúnaði |
Safnasafnið | Feluleikur Safnasafnsins |
Samhygð samtök um sorg og sorgarviðbrögð N-Eystra | Fræðsla og stuðningur |
Skautafélag Akureyrar | Kaup á öryggishjálmum fyrir gesti |
Skautafélag Akureyrar, Listhlaupadeild (LSA) | Byrjendanámskeið listhlaupi - fyrir unglinga og fullorðna |
Skátafélagið Klakkur | Útilífsnámskeið fyrir skáta 13 ára og eldri |
Sóknarnefnd Grímseyjarkirkju | Verkefnið "Kirkjan sem var" |
Sundfélagið Óðinn | Vor- og sprengimót ásamt endurnýjun á búnaði |
Ungmennafélag Akureyrar | Meistaramót Íslands í frjálsum haldið á Akureyri 2022 |
Ungmennafélagið Samherjar | Leikjaskóli fyrir 6-12 ára börn |
Unnur María Máney Bergsveinsdóttir | Húlladúllan - Smiðjur fyrir börn og fjölskyldur þeirra |
Urðarbrunnur Menningarfélag | Örnefnaskráning í Fnjóskadal |
Verksmiðjan á Hjalteyri | Verksmiðjuopnanir af ýmsu tagi |
Zontaklúbbur Akureyrar | Íslenskunámskeið fyrir erlendar konur með lítil börn eða barnshafandi |
Þór Íþróttafélagið | Verkefnið "Heil-inn" sem styður við hugarfarslega þætti hjá iðkendum í yngri flokkum félagsins |
Þroskahjálp Norðurlandi eystra | Systkinasmiðja á Akureyri |
Opnunartími Norðurorku
Opið virka daga kl. 8-12 og 13-15