3. feb 2025

Styrkir Norðurorku til samfélagsverkefna 2025

Styrkþegar eða fulltrúar þeirra að lokinni úthlutun ásamt Eyþóri Björnssyni forstjóra Norðurorku og …
Styrkþegar eða fulltrúar þeirra að lokinni úthlutun ásamt Eyþóri Björnssyni forstjóra Norðurorku og Hlyni Jóhannssyni stjórnarformanni Norðurorku. (Mynd: Axel Þórhallsson)

Miðvikudaginn 29. janúar, fór fram afhending á styrkjum Norðurorku til samfélagsverkefna vegna ársins 2025. Athöfnin fór fram í Menningarhúsinu Hofi, sem er vel við hæfi þar sem Norðurorka er bakhjarl Menningarfélagsins.

Í nóvember 2024 auglýsti Norðurorka eftir umsóknum um styrki til samfélagsverkefna fyrir árið 2025 og rann umsóknarfrestur út síðar sama mánuð. Fram kom að veittir væru styrkir til menningar- og lista, íþrótta- og æskulýðsstarfs og góðgerðarmála. Markmið með styrkjunum er að styðja við sjálfsprottið starf, starfsemi frjálsra félagasamtaka og framtak einstaklinga sem stuðlar að farsælli þróun samfélagsins, lífsgæðum og fjölbreyttu mannlífi.

Mikil hugmyndaauðgi í samfélaginu

Alls bárust 103 umsóknir og er fjölbreytni verkefna mikil sem endra nær og lýsir vel þeirri hugmyndaauðgi sem ríkir í samfélaginu okkar. Fjögurra manna vinnuhópur (skipaður starfsfólki NO) fór yfir umsóknirnar og varð niðurstaða hópsins að veita styrki til 29 verkefna. Verkefnið var erfitt enda fjölmörg frambærileg verkefni sem sótt var um styrk til og ákveðin upphæð sem var til ráðstöfunar.

Fjölbreytt verkefni sem byggja á eldmóði

Í  ár tengjast flest verkefnanna íþróttum, útivist og lýðheilsu annarsvegar og fræðslu og stuðningi hinsvegar, menning og listir eru þó einnig áberandi. Sem dæmi um fjölbreytileika verkefna þá voru einnig veittir styrkir til íþróttaæfinga fyrir börn með sérþarfir, núvitundar og hugleiðslu meðal flóttafólks á Akureyri, yfirbyggingar útieldhúss, sjálfseflingar stúlkna sem hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi,  tónlistahátíðar, fræðslu af ýmsu tagi og fjölskyldusmiðju fyrir fjölskyldur þar sem foreldri glímir við geðræn veikindi.

Verkefnin eiga það sameiginlegt að á bak við þau liggur mikill eldmóður og sjálfboðavinna fólks sem leggur sig fram við að veita sínu hjartans máli eða áhugamáli brautargengi og því er ánægjulegt að geta átt þátt í að verðlauna slíkt starf.