30. maí 2011

Þjónustustjóri ráðinn

Jóhannes B. Guðmundsson hefur verið ráðinn í starf þjónustustjóra hjá Norðurorku hf.

Jóhannes B. Guðmundsson hefur verið ráðinn í starf þjónustustjóra hjá Norðurorku hf.

Alls sóttu þrjátíu og sjö manns um starf þjónustustjóra og ánægjulegt að fá mikið af góðum umsóknum.   Við úrvinnslu og mat á umsóknum var leitað aðstoðar frá Capacent, en starfsmenn þess tóku jafnframt ráðningarviðtöl við hluta umsækjenda.

Jóhannes er 37 ára gamall og hefur starfað hjá  Gagnaveitu Reykjavíkur og Orkuveitu Reykjavíkur sem hópstjóri tækniþjónustu og einnig  sem verkefnisstjóri.  Maki Jóhannesar er Arna Jakobsdóttir þroskaþjálfi og eiga þau þrjá syni.