1. sep 2011

Tilboð í borun á hitastigulsholum í Hörgársveit opnuð

Borun á hitastigulsholunum í Hörgársveit var boðin út um miðjan ágúst og bárust sjö tilboð frá sex aðilum, en einn skilaði inn frávikstilboði. Tilboðin voru opnuð í gær að viðstöddum fulltrúum bjóðenda.

Í vor sem leið gengu Hörgársveit og Norðurorka hf. frá samstarfsyfirlýsingu um jarðhitarannsóknir í Hörgárdal og Öxnadal með það fyrir augum að meta hvort jarðhitavinnsla á svæðinu sé vænleg.

Við mynni Hörgárdals

Við undirbúning verkefnisins sótti Hörgársveit um styrk úr Orkusjóði til jarðhitarannsókna á svæðinu sem samþykkti að veita fimm milljónir til verkefnisins. Kostnaðaráætlun vegna verksins í heild sinni er um tíu milljónir króna og munu Hörgársveit og Norðurorka sameiginlega leggja tvær og hálfa milljón hvort til verkefnisins.

Í framhaldi af þessu var gengið frá samkomulagi við Íslenskar orkurannsóknir, ÍSOR, um undirbúning að nauðsynlegum rannsóknum sem skiptast í tvo megin þætti, þ.e. ákvörðun um borstaði fyrir hitastigulsholur og síðan rannsóknir á viðkomandi holum á meðan á borun þeirra stendur og eftir að þeim er lokið.

Borun á hitastigulsholunum var boðin út um miðjan ágúst og bárust sjö tilboð frá sex aðilum, en einn skilaði inn frávikstilboði. Tilboðin voru opnuð í gær að viðstöddum fulltrúum bjóðenda.

Tilboð bárust frá eftirfarandi aðilum:
Alvarr ehf.
Árni Helgason ehf.
Árni Kópsson
Bjarnastaðir ehf.
Jarðboranir hf.
Ræktunarsamband Flóa og Skeiða ehf.

Tilboðin verða yfirfarin og að því búnu gengið til samninga um verkið.