5. jún 2014

Vatni hefur verið hleypt á í Síðuhverfi

Tengingum er lokið í Síðuhverfi og búið að hleypa vatni á hverfið (kl. 20:45)

Nokkurn tíma getur tekið að ná upp fullum þrýstingi í dreifikerfið.  Áhrifasvæði þeirra brunna sem teknir voru út er allstórt og því ljóst að nokkuð misjafnt er hversu hratt vatnið kemur í einstakar götur.

Viðskiptavinum er bent á að huga að hitakerfum sínum, dælum á gólfhitalögnum, varmaskiptum og öðrum slíkum búnaði. Jafnframt er mjög gott að lofttæma ofnakerfi eftir að vatnið er komið á. Hafi viðskiptavinir ekki þekkingu á búnaði sínum er nauðsynlegt að hafa samband við píplagningameistara til þess að huga að kerfinu og búnaði þess.

Komi upp einhver vandamál þá er viðskiptavinum bent á að hafa samband við þjónustuver Norðurorku í síma 460-1300 á skrifstofutíma (8:00-16:00) en bakvakt Norðurorku í síma 892- 7305 utan þess tíma. Mjög gott er að lofttæma ofna í húsum með þar til gerðum lykli fyrir lofttæmingarkrana á ofnunum eftir að vatni hefur verið hleypt á að nýju. Sé fólk ekki með slíka lykla tiltæka eða telji sig ekki hafa næga þekkingu til að vinna slíkt verk þá endlega hafið samband við pípulagninga-meistara hússins.

Framkvæmdir við að fjarlægja brunna við Hlíðarbraut júní 2014

Framkvæmdir við að fjarlægja brunna við Hlíðarbraut júní 2014