5. jún 2014

Vatni hefur verið hleypt á í Síðuhverfi

Tengingum er lokið í Síðuhverfi og búið að hleypa vatni á hverfið (kl. 20:45).

Nokkurn tíma getur tekið að ná upp fullum þrýstingi í dreifikerfið. Nokkuð stórt svæði er á áhrifasvæði þeirra brunna sem verið var að fjarlægja og ljóst að fullur þrýtingur kemur mishratt inn eftir götum.

Viðskiptavinum er bent á að huga að hitakerfum sínum, dælum á gólfhitalögnum, varmaskiptum og öðrum slíkum búnaði. Jafnframt er mjög gott að lofttæma ofnakerfi eftir að vatnið er komið á. Hafi viðskiptavinir ekki þekkingu á búnaði sínum er nauðsynlegt að hafa samband við píplagningameistara til þess að huga að kerfinu og búnaði þess.

Komi upp einhver vandamál þá er viðskiptavinum bent á að hafa samband við þjónustuver Norðurorku í síma 460-1300 á skrifstofutíma (8:00-16:00) en bakvakt Norðurorku í síma 892- 7305 utan þess tíma. Mjög gott er að lofttæma ofna í húsum með þar til gerðum lykli fyrir lofttæmingarkrana á ofnunum eftir að vatni hefur verið hleypt á að nýju. Sé fólk ekki með slíka lykla tiltæka eða telji sig ekki hafa næga þekkingu til að vinna slíkt verk þá endlega hafið samband við pípulagningameistara hússins.

Framkvæmdir við að fjarlægja brunna við Hlíðarbraut júní 2014dssd

Framkvæmdir við að fjarlægja brunna við Hlíðarbraut júní 2014