11. jún 2014

Vegna vinnu við stofnæðar þarf að loka fyrir heita vatnið í hluta Naustahverfis

Vegna vinnu við stofnæðar þarf að loka fyrir heita vatnið í hluta Naustahverfis, fimmtudaginn 12. júní, frá kl. 8:oo og fram eftir degi.

Lokunarsvæðið tekur til hluta af Naustahverfi, sjá nánar á myndinni hér fyrir neðan.

Viðskiptavinum er bent á að gæta vel að því að allir kranar séu lokaðir þegar vatn kemur á aftur.  Eins er viðskiptavinum bent á að huga að hitakerfum sínum, dælum á gólfhitalögnum, varmaskiptum og öðrum slíkum búnaði.  Jafnframt er mjög gott að lofttæma ofnakerfi eftir að vatnið er komið á.  Hafi viðskiptavinir ekki þekkingu á búnaði sínum er nauðsynlegt að hafa samband við pípulagningameistara til þess að huga að kerfinu og búnaði þess.

 Húsráðendum er bent á að kynna sér góð ráð komi til þjónusturofs hér á heimasíðunni.

Hitaveiturof 12.06.2014