31. des 2015

Verðbreytingar við áramót

Nokkrar breytingar verða á verðskrá Norðurorku þann 1. janúar 2016.  Í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar síðast liðið haust var gerð ítarleg skoðun á þeim hækkunum sem orðið hafa á rekstrarkostnaði félagsins undangengin ár auk þess sem horft var til verðbólguspár Seðlabankans. Þá var einnig litið til þróunar á verðskrá félagsins síðastliðin ár og þá í samhengi við áætlaða fjárfestingarþörf komandi ára.  

Skoðunin leiddi til þeirrar niðurstöðu að verðskrár vatnsveitu, hitaveitu og fráveitu hækka núna um áramótin um 4,1%.  Verðskrá Rafveitu hækkar hins vegar ekki að þessu sinni og hefur hún verið óbreytt frá árinu 2012.

Í  umræðum um verðskrárbreytingar Norðurorku er mikilvægt að leggja áherslu á að verðbreytingar hafa verið mjög hóflegar undangengin ár og Norðurorka markvisst lagt lóð á vogarskálar stöðugs verðlags.  Á móti kemur að verulegar fjárfestingar liggja fyrir hjá félaginu, bæði nýframkvæmdir og endurnýjun á veitukerfum og því mikilvægt að tekjur félagsins rýrni ekki heldur séu í samhengi við reksturinn og fjárfestingar á hverjum tíma.