2. maí 2012

Vestursíða - lokun fyrir hitaveitu

Mynd úr hitaveitubrunni
Mynd úr hitaveitubrunni
Vegna framkvæmda við hitaveitu í Vestursíðu þarf að loka fyrir vatnið á morgun, fimmtudaginn 3. maí frá kl. 7:45 og fram eftir degi.

Vegna framkvæmda við hitaveitu í Vestursíðu þarf að loka fyrir vatnið á morgun, fimmtudaginn 3. maí frá kl. 7.45 og fram eftir degi. Svæðið sem lokunin tekur til má sjá á þessari mynd hér. Tilkynningar hafa verið bornar út í pósti til húsráðenda á viðkomandi svæði.

Vakin er athygli á því að loka þarf Vestursíðunni fyrir umferð ökutækja annarra en Strætisvagna Akureyrar vegna framkvæmdanna.

Hluti af hönnun hitaveitunnar í árdaga hennar voru svonefndir hitaveitubrunnar sem eru steinsteypt jarðhýsi þar sem ýmsar tengingar lagna koma saman, þenslustykki, kranar o.fl.   Með breyttri tækni og efni eru þessir brunnar orðnir úreltir og langtímaáætlanir gera ráð fyrir því að þeir verði allir lagðir af.  Smátt og smátt er því unnið að því að fjarlægja þá úr dreifikerfi hitaveitunnar og einn slíkur verður fjarlægður úr Vestursíðu á morgun.