27. nóv 2013

Viðgerð á stofnlögn við Hlíðarbraut lokið

Lokið er viðgerð á stofnlögn við Hlíðarbraut og búið að hleypa vatni á.  Athygli húsráðenda er vakin á því að nokkurn tíma tekur að ná upp þrýstingi.  Einnig er minnt á nauðsyn þess að lofttæma ofna og annan búnað sem í kann að myndast loft þegar vatn er tekið af, svo sem dælur fyrir gólfhitalagnir og þess háttar.

Viðskiptavinum er bent á að kynna sér góð ráð komi til þjónusturofs hér á heimasíðunni.

Eftir er að loka skurði þar sem viðgerð fór fram og verður það gert á morgun fimmtudag.

Þjónusturof hitaveitu - ábending til húsráðenda

  1. Hafa þarf í huga að loft getur komist á kerfið þegar vatni er hleypt á að nýju. Sérstaklega getur þurft að huga að sérhæfðum búnaði hitakerfa húsa, s.s. gólfhitakerfum, hitalögnum í plönum og dælum þeirra, t.d. með því að stöðva þær á meðan vatnsleysi varir. Kerfin eiga þó að vera útbúin þannig að þessi hætta sé í lágmarki.
  2. Bregðast þarf við lofti í kerfum með loftæmingu á ofnum, dælum og öðrum búnaði sem loft getur sest í. Einnig er nauðsynlegt að huga að öryggisloka sem getur opnast þegar vatni er hleypt á ef stjórnlokar á grind eru stirðir.
  3. Húsráðendum er bent á að við viðgerðir eða endurbætur á stofnkerfum og/eða heimlögnum kunna óhreinindi að fara af stað í lögnum þegar vatni er hleypt á. Því er nauðsynlegt að skola kerfið vel út með því að láta vatn renna um stund. Best er að útskolun fari fram sem næst inntaksstað sé þess kostur.
  4. Sé húsráðandi í vafa um hvernig bregðast á við skal undantekningalaust haft samband við við pípulagningameistara hússins.

Viðgerð lokið á stofnlögn við Hlíðarbraut