27. jan 2014

Viðgerðinni í Drekagili lokið

Lokið er viðgerð á kaldavatnslögn í Drekagili og verið að hleypa vatni á lögnina (kl. 23:00).

Eftir að búið var að gera við bilun á kaldavatnslögninni kom í ljós önnur bilun ofar í götunni og verkið tók því heldur lengri tíma en áætlað var í fyrstu.

Viðskiptavinir eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem þjónusturofið hafði í för með sér.