24. jún 2013

Virkjunarannsóknir á efri hluta vatnasviðs Skjálfandafljóts

Hrafnabjargavirkjun hf. og Landsvirkjun hafa fengið úthlutað sameiginlegu rannsóknarleyfi frá Orkustofnun til rannsóknar á efri hluta vatnasviðs Skjálfandafljóts á virkjunarsvæðum sem hafa verið kennt við Hrafnabjörg og Fljótshnjúk. Rannsóknarleyfið gildir til ársloka 2017.

Sem stendur eru virkjunarkostir á vatnasvæði Skjálfandafljóts í biðflokki samkvæmt rammaáætlun þar sem ekki liggja fyrir nægileg gögn og rannsóknir á svæðinu. Markmið rannsóknanna er að meta hagkvæmni og leggja fram tillögur að mögulegum virkjunarkostum á vatnasviðinu. Nýjar útfærslur á virkjunarkostum verða lagðir fram við  endurskoðun rammaáætlunar.

Eigendur Hrafnabjargavirkjunar eru Norðurorka, Orkuveita Húsavíkur og Atvinnuefling Þingeyjarsveitar.