13. jún 2013

Lokað fyrir heita vatnið í Víðilundi

Vegna óvæntra atvika við brunnavinnu þurfti að taka heita vatnið af á stærra svæði en reiknað var með. Auk svæðisins sem áður hafði verið auglýst reyndist einnig nauðsynlegt að taka heita vatnið af í Víðilundi. Búast má við að heitavatnslaust verði fram eftir degi.

Vegna óvæntra atvika við brunnavinnu (sjá auglýsingu hér) þurfti að taka heita vatnið af á stærra svæði en reiknað var með. Auk svæðisins sem áður hafði verið auglýst reyndist einnig nauðsynlegt að taka heita vatnið af í Víðilundi.

Búast má við að heitavatnslaust verði fram eftir degi.

Um leið og viðskiptavinir eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin kann að hafa í för með sér eru þeir beðnir að kynna sér GÓÐ RÁÐ KOMI TIL ÞJÓNUSTUROFS hér á heimasíðunni.

Vinsamlega hafið samband við þjónustuver okkar í síma 460-1300 eða í netfangið thjonusta@no.is ef frekari upplýsinga er óskað. Eftir opnunartíma þjónustuvers er hægt að hafa samband við bakvakt í síma 892-7305.