8. des 2015

Rafmagnleysi í miðbæ - vararafstöð

Nú er unnið að því að tengja vararafstöð við dreifistöð nr. 22 sem gerir kleyft að koma rafmagni til þeirra viðskiptavina sem verið hafa straumlausir.  Þrátt fyrir að rafmagn komist á þarf að hafa í huga að vararafstöðin annar ekki fullu álagi ef allir nota mikið rafmagn. 

Því er mikilvægt að notendur sem tengdir eru dreifistöð nr. 22 fari sparlega með rafmagn og noti það aðeins til brýnna nauðsynja til að forðast megi skömmtun.