Samkvæmt tilkynningu á vef Landsnets (kl. 22:39 og kl. 22:48) varð útleysing á Kröflulínu milli Kröfluvirkjunar og spennuvirkis á Rangárvöllum. Við þetta varð rafmagnslaust á Akureyri því áður hafði orið útleysing á línunni milli Varmahlíðar og Rangárvalla en sú útleysing olli ekki rafmangsleysi meðan Kröflulína var inni.
Á vef Landsnets er atburðurinn merkur rauður í alvarleikastigi.
Samkvæmt neyðaráætlun Norðurorku er nú farið í það að koma varaafli á dælukerfi hitaveitunnar.
Opnunartími Norðurorku
Opið virka daga kl. 8-12 og 13-15